Hvar leita ég hjálpar við ofbeldi?
Allir eiga rétt á að fá aðstoð og ofbeldið er aldrei brotaþola að kenna!
Ef þú býrð við ofbeldi eða hefur orðið fyrir ofbeldi eða þekkir til einhvers sem er í þeim aðstæðum þá eru ýmis úrræði í boði.
Þú getur alltaf hringt í 112 en þú getur líka leitað til ýmissa grasrótarsamtaka og félagsþjónustunnar.
Höfuðborgarsvæðið
Sími: Skrifstofa: 561-3720
Neyðarnúmer allan sólarhringinn: 561-1205
Netfang: Kvennaathvarf@kvennaathvarf.is
Kvennathvarfið er fyrir konur og börn þeirra þegar dvöl í heimahúsum er þeim óbærileg vegna andlegs eða líkamlegs ofbeldis eiginmanns, sambýlismanns eða annarra heimilismanna.
Athvarfið er einnig fyrir konur sem hefur verið nauðgað.
Símaráðgjöf allan sólarhringinn í síma 561 1205. Konur geta hringt og rætt mál sín og fengið stuðning og upplýsingar.
Ókeypis viðtöl þar sem konur geta komið og fengið stuðning og upplýsingar án þess að til dvalar komi.
Nauðsynlegt er að hringja áður í síma 561 1205 og panta tíma í viðtal.
Sjálfshjálparhópar starfa á vegum Kvennaathvarfsins, þar sem nokkrar konur hittast reglulega undir handleiðslu starfskonu athvarfsins. Nauðsynlegt er að koma í viðtal áður.
Þjónustumiðstöðvar veita brotaþolum ofbeldis ýmiss konar ráðgjöf og þjónustu.
Þú getur einnig hringt í þjónustuver borgarinnar og fengið upplýsingar um eða samband við þína þjónustumiðstöð.
Þjónustuver Reykjavíkurborgar
Sími: 4 11 11 11
Bjarkarhlíð
Í Bjarkarhlíð er öllum sem orðið hafa fyrir ofbeldi og eru 18 ára og eldri veitt ráðgjöf, stuðningur og upplýsingar. Öll þjónusta Bjarkarhlíðar er ókeypis.
Heimilisfang: Bjarkarhlíð við Bústaðaveg (í rjóðrinu við hliðina á Bústaðakirkju)
Sími: 553 3000
Netfang: bjarkarhlid@bjarkarhlid.is
Bjarkarhlíð á facebook
Heimilisfang: Laugavegur 170, 105 Reykjavík
Símanúmer: 562 6868 / 800 6868
Netfang: stigamot@stigamot.is
Stígamót eru ráðgjafar- og stuðningsmiðstöð fyrir bæði konur og karla sem hafa verið beitt hvers kyns kynferðisofbeldi. Aðstandendur, svo sem foreldrar, makar og vinir, geta einnig fengið stuðning og ráðgjöf á Stígamótum óski þeir þess.
Til Stígamóta kemur fólk frá 18 ára aldri vegna ofbeldis sem það hefur verið beitt, bæði í æsku og á fullorðinsárum. Margir koma vegna ofbeldis sem átti sér stað fyrir mörgum árum og jafnvel áratugum síðan. Vert að taka fram að karlmenn eru ekki síður velkomnir á Stígamót en konur og eru u.þ.b. 10-15% af þeim sem leita til samtakanna árlega.
Símar:
543 1000 - Aðalskiptiborð LSH
543 2000 - Afgreiðsla bráðamóttöku LSH
543 2094 - Neyðarmóttaka á dagvinnutíma
543 2085 - Áfallamiðstöð LSH
Heimilisfang: Bráðamóttakan á Landspítalanum Fossvogi
Mikilvægt að koma sem fyrst eftir brot. Hægt er að koma beint á bráðamóttökuna í Fossvogi og biðja þar um þjónustu á neyðarmóttöku.
Hægt er að biðja um aðstoð lögreglu til að koma á neyðarmóttökuna.
Markmið neyðarmóttökunnar að tryggja velferð og stöðu þeirra sem til þjónustunnar leita vegna nauðgunar, tilraunar til nauðgunar eða annars kynferðisofbeldis.
Tilgangur með þjónustu neyðarmóttökunnar er að draga úr eða koma í veg fyrir andlegt og líkamlegt heilsutjón sem oft er afleiðing kynferðislegs ofbeldis.
Þeim sem leita til neyðarmóttökunnar skal sýnd fyllsta tillitssemi og hlýja og þess gætt að þeim sé ekki mætt með vantrú eða tortryggni.
Sími: 552-1500
Heimilisfang: Túngata 14,101 Reykjavík
Kvennaráðgjöfin er ókeypis lögfræði- og félagsráðgjöf. Opnunartímar eru þriðjudaga frá kl. 20-22 og fimmtudaga frá kl. 14-16. Megintilgangur starfseminnar er að veita konum stuðning og ráðgjöf, en Kvennaráðgjöfin er opin öllum konum og körlum og má hvort sem er koma eða hringja. Þjónustan er endurgjaldlaus og þurfa þeir sem til okkar sækja ekki að gefa upp nafn eða aðrar persónuupplýsingar.
Hjá Kvennaráðgjöfinni starfa bæði lögfræðingar og félagsráðgjafar sem og laganemar og félagsráðgjarfanemar í sjálfboðavinnu.
Ókeypis lögfræði ráðgjöf fyrir innflytjendur. Ef þörf er á túlk veitir skrifstofan slíkan endurgjaldslaust, beiðni um túlk skal leggja fram við bókun
Sími: 552-2720
Heimilisfang: Túngata 14, 101 Reykjavík
Heimilisfang: Túngata 14, 2. hæð
Jafningjaráðgjöf fyrir konur af erlendum uppruna á þriðjudagskvöldum frá 20:00
Odwaga jest kobietą - Stuðningur við pólskar konur sem eru brotaþolar ofbeldis
Valdefling fyrir pólskar konur.
Þjónustan er ókeypis.
Hafið samband í gegnum facebook síðuna okkar Odwaga jest kobieta eða í síma 788 7574.
Landsbyggðin
Á Fjölmenningarsetrinu er hægt að finna ýmsar upplýsingar sem varðar innflytjendur, íslenskt samfélag, íslenskukennslu, réttindi og skyldur, túlkun, þýðingar og fleira.
Sími: 450-3090 (Íslenska/enska), 470-4702 (Tælenska), 470-4705 (Spænska), 470-4706 (Litháenska), 470-4707 (Rússneska), 470-4708 (Pólska), 470-4709 (Serbneska/Króatíska)
Heimilisfang: Árnagata 2-4, Ísafjörður
Netfang: mcc@mcc.is
Heimilisfang: Brekkugata 34, 600 Akureyri
Símanúmer: 461 5959 / 857 5959
Systursamtök Stígamóta á Akureyri.
Aflið er fyrir alla sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi og/eða heimilisofbeldi og aðstandendur þeirra s.s. maka, foreldra, systkini og vini sem óska eftir ráðgjöf.
Fyllsta trúnaðar og þagmælsku er gætt.
Bjarmahlíð, Akureyri
Bjarmahlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis og býður upp á ráðgjöf og upplýsingar fyrir fólk sem hefur verið beitt ofbeldi. Hjá Bjarmahlíð er unnið með þolendum ofbeldis á þeirra forsendum. Öll þjónusta og ráðgjöf er undir sama þaki með það að markmiði að auðvelda þolendum að leita sér aðstoðar.
Bjarmahlíð er staðsett í Aðalstræti 14, 600 Akureyri.
Símanúmer: 551-2520
Netfang: bjarmahlid@bjarmahlid.is