Í dag klukkan 12 fer fram fundur Borgarstjórnar Reykjavíkur og er hann í beinni útsendingu hér.
Borgarstjórinn í Reykjavík er æðsti yfirmaður starfsmanna Reykjavíkurborgar. Borgarstjóri er ráðinn af borgarstjórn og getur verið borgarfulltrúi. Sé hann borgarfulltrúi hefur hann skyldur sem slíkur einnig.
Borgarstjóri gegnir þremur meginhlutverkum. Hann er framkvæmdastjóri Reykjavíkurborgar, opinber fulltrúi Reykjavíkurborgar og pólitískur leiðtogi meirihlutans. Hann er prókúruhafi borgarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna borgarinnar, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki borgarstjórnar þarf til. Borgarstjóra er heimilt með samþykki borgarstjórnar að veita öðrum starfsmönnum borgarinnar prókúru.
Borgarstjóri fer jafnframt með eignarhluta Reykjavíkurborgar í B-hluta fyrirtækjum. Hann er formaður almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins og er fulltrúi borgarinnar í SSH (Sambandi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu) og SHS (Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu).
Dagur B. Eggertsson tók við embætti borgarstjóra þann 16. júní 2014.