Reykjavíkurborg veitir ár hvert félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda. Að hausti ár hvert eru auglýstir til umsóknar styrkir úr borgarsjóði með fjögurra vikna umsóknarfresti. Fagráð fara yfir umsóknirnar og taka ákvörðun um úthlutun fyrir árslok hvers árs.

Hér til hliðar má nálgast upplýsingar um styrki, styrkúthlutanir og upplýsingar um menningartengdar viðurkenningar sem Reykjavíkurborg veitir og hefur veitt undanfarin ár, og umsóknir fyrir styrki sem Reykjavíkurborg og samstarfsaðilar veita.