Á hverju vori óskar Reykjavíkurborg eftir hugmyndaríkum og áhugasömum einstaklingum eða hópum til að taka almenningssvæði í borginni í fóstur. Verkefnið stendur að jafnaði yfir frá maí til september ár hvert og er ætlað að skapa skemmtilegri torg í skemmtilegri borg. 

Hvers vegna?

Torg í biðstöðu verkefnið hefur verið í gangi á torgum og almenningssvæðum í borginni frá árinu 2011. Verkefnið snýst um að lífvæða og endurskilgreina svæðin með tímabundnum lausnum. Markmið verkefnisins er að búa til skemmtilegri svæði, hampa því óvænta og vera vettvangur róttækra tilrauna með borgarumhverfið. Svæðunum er úthlutað til hópa og einstaklinga sem vilja gera tilraunir til að glæða þau lífi. 

Ert þú með hugmynd eða viltu fá frekari upplýsingar? Hafðu samband með því að senda tölvupóst á gongugotur@reykjavik.is

Torg í biðstöðu er í grunninn skipulagstæki og er fyrst og fremst ætlað að stuðla að sjálfbærri þróun svæða, auka fjölbreytta notkun almennings á svæðunum og þar með auka möguleika þeirra og fá almenning, íbúa, rekstraraðila og aðra hagsmunaaðila til að sjá möguleikana sem felast í svæðinu. 

Torg í biðstöðu er einnig ætlað að styðja við markmið sem sett eru fram í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 um skipulag vistvænna hverfa og vistvænar samgöngur. 

Hvað eru biðsvæðaverkefni? 

Biðsvæðaverkefni bjóða borgum upp á þann möguleika að gera tilraunir með tímabundin verkefni, að gefa skapandi hugmyndum tækifæri án þess að komi til dýrar framkvæmdir ásamt því að oft koma mjög óvæntar útkomur úr verkefnunum sem erfitt hefði verið að koma auga á fyrir fram. Borgir út um allan heim eru farnar að tileinka sér þessa hugmyndafræði sem stundum leiðir til varanlegra breytinga. 

Sumarið 2021 er þemað hvílustæði, bílastæðum verður breytt í dvalasvæði.

Sumarið 2020 var sérstök athygli vakin á sumargötum í miðborginni og tækifærum sem þeim fylgja.