20.01.2022
Nantes-Reykjavík vinnudvöl fyrir tónlistarfólk
L’Institut français (e. The French Institute), Tónlistarborgin Reykjavík, franska borgin Nantes, ÚTÓN, Mengi í Reykjavík og Trempo í Nantes bjóða upp á skiptivinnudvöl fyrir tónlistarfólk, annars vegar frá Reykjavík og hins vegar frá Nantes. Markmið verkefnisins er að byggja brú á milli borganna tveggja og tónlistarsamfélaga þeirra, sem og hlúa að sjálfbæru samstarfi í gegnum krafta tónlistar og sköpunar. Verkefnið er unnið í samstarfi við Franska sendiráðið á Íslandi, Alliance Française...
20.01.2022
Samið um brottflutning Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf.
Borgarráð samþykkti í dag að fjármála- og áhættustýringarsviði yrði falið að meta kosti þess og galla að selja Malbikunarstöðina Höfða hf. og að leitað yrði til óháðra ráðgjafa vegna verkefnisins. Þá var staðfest samkomulag Reykjavíkurborgar við malbikunarstöðina um brottflutning hennar frá Sævarhöfða 6-10 í Reykjavík.
20.01.2022
Reykjavík í hópi innan við 10% borga sem fá toppeinkunn í loftslagsmálum
Reykjavíkurborg fær æðstu viðurkenningu og toppeinkunn fyrir að vera leiðandi borg í loftslagsmálum á alþjóðavísu. Reykjavík er ein af 95 borgum sem fá A í einkunn fyrir gagnsæi í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum frá óháða matsfyrirtækinu CDP. Aðeins 9,8% af borgum sem fengu einkunn fyrir árið 2021 fengu A.
19.01.2022
Látinna embættismanna minnst í borgarstjórn
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, minntist tveggja embættismanna borgarinnar í upphafi borgarstjórnarfundar í gær 18. janúar. Í minningarræðu sinni fór Dagur yfir störf og feril Örnu Schram, sviðsstjóra menningar og ferðamálasviðs sem lést 11. janúar síðastliðinn og Egils Skúla Ingibergssonar, fyrrverandi borgarstjóra, sem lést 22. desember 2021.
19.01.2022
Allt kapp lagt á að halda mikilvægri þjónustu órofinni
Á velferðarsvið eru nú 236 starfsmenn í sóttkví eða einangrun, eða tæplega 7% starfsmanna. Á fundi velferðarráðs í dag var farið þær aðgerðir sem gripið hefur verið til á sviðinu vegna yfirstandandi bylgju Covid-19. Teiknaðar hafa verið upp fjórar sviðsmyndir til að leggja mat á hversu margir starfsmenn þurfa að vera fjarverandi til þess að starfseminni sé ógnað.
19.01.2022
Auglýst eftir tilnefningum til Minningarverðlauna Arthurs Morthens
Tilnefndu verkefni í anda stefnu um skóla án aðgreiningar.
18.01.2022
Jasmina Vajzovic Crnac ráðin leiðtogi alþjóðateymis velferðarsviðs
Jasmina Vajzovic Crnac hefur verið ráðin til að leiða nýtt teymi alþjóðamála á velferðarsviði. Teymið ber ábyrgð á þjónustu við einstaklinga, börn og fjölskyldur af erlendum uppruna, veitir faglega forystu og leiðir umbætur. Jasmina hefur mikla reynslu af störfum í velferðarþjónustu, auk þess að búa að þeirri reynslu að hafa sjálf verið flóttamaður. Í heild sóttu 36 einstaklingar um starfið.
18.01.2022
Róðurinn þyngist í skóla- og frístundastarfinu vegna Covid-19
Fimmtungur grunnskólanema og þriðjungur leikskólabarna ekki í skóla og meira en 12% starfsfólks í skóla- og frístundastarfinu fjarverandi.
17.01.2022
Hvetjum mikilvægt fólk!
Óskað er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna fyrir framsækið grunnskólastarf. Verðlaunin verða afhent í mars.
17.01.2022
Göngu- og hjólastígaframkvæmdir 2022
Fjögur ný göngu- og hjólastígaverkefni voru kynnt í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkurborgar í síðustu viku. Veitt var heimild fyrir áframhaldandi undirbúningi, verkhönnun og gerð útboðsgagna fyrir eftirtaldar stígaframkvæmdir.