mánudagur, 28. desember 2015
Eins og undanfarin ár eiga íbúar þess kost að sækja sér salt og sand á hverfastöðvar og verkbækistöðvar Reykjavíkurborgar til að bæta öryggi á gönguleiðum í nágrenni sínu og heimkeyrslum. 
 
  • Íbúar geta sótt salt og sand til Reykjavíkurborgar
  • Gott er að koma með eigin ílát
Salt og sandur er aðgengilegur fyrir íbúa á eftirfarandi stöðum:
 
  • Þjónustumiðstöðinni við Stórhöfða (keyrt inn frá Svarthöfða)
  • Hverfastöðinni við Njarðargötu,      
  • Hverfastöðinni í Jafnaseli,
  • Hverfastöðinni á Kjalarnesi,
  • Verkbækistöðinni við Árbæjarblett og 
  • Verkbækistöðinni á Klambratúni við Flókagötu.
Stöðvarnar eru opnar mánudaga til fimmtudaga kl. 7:30 - 17:00 og föstudaga kl. 7:30 -15:25.
 
Íbúar eru hvattir til að hafa með sér ílát en einnig er mögulegt að fá poka á staðnum.  Skóflur eru við sand- og salthrúgurnar.