Reykjavíkurborg hefur sett sér Græna umgjörð (Green Bond Framework) vegna útgáfu grænna skuldabréfa sem borgin gefur út fyrst íslenskra fyrirtækja á íslenskum markaði. 

 

 

Reykjavíkurborg hefur sett sér Græna umgjörð (Green Bond Framework) (áður Grænn rammi) vegna útgáfu grænna skuldabréfa sem borgin gefur út fyrst íslenskra fyrirtækja á íslenskum markaði. 

Með Grænu umgjörðinni eru skilgreind nokkur mikilvæg atriði varðandi græna skuldabréfaútgáfu borgarinnar, s.s.:

Hvaða fjárfestingar geta fallið undir fjármögnun Reykjavíkurborgar með grænum skuldabréfum

Hvernig staðið er stjórnsýslulega að því að tryggja að einungis þau verkefni sem uppfylla kröfur Grænu umgjarðarinnar verði fjármögnuð með grænum skuldabréfum

Hvernig staðið er að því að tryggja að fjármunirnir séu eyrnamerktir völdum grænum verkefnum og haldið aðskildum frá öðrum fjármunum

  • Hvernig staðið verði að skýrslugjöf um framkvæmdina
  • Hvernig staðið verði að staðfestingu ytri endurskoðenda 
  • Hvernig fengin verði fagleg staðfesting á gæðum Grænu umgjarðarinnar.

Nú þegar liggur fyrir fagleg staðfesting á Grænu umgjörð Reykjavíkurborgar frá CICERO (Center for International Climate Research) en flestir útgefendur grænna skuldabréfa í Evrópu leita til þeirra miðstöðvar sem er leiðandi í alþjóðlegum loftlagsrannsóknum og baráttunni gegn loftlagsbreytingum. Samkvæmt mati CICERO fær Græn umgjörð Reykjavíkurborgar hæstu einkunn, dökkgrænan (Dark Green), og allir undirflokkar og verkefni fá einnig dökkgræna einkunn. 

Meðal verkefna sem geta fallið undir Grænu umgjörðina er t.a.m. uppbygging Borgarlínu, lagning hjólreiðastíga og göngustíga, LED væðing götulýsingar, hleðslustöðvar fyrir rafbíla og fleira sem sparar orku og dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Litið er sérstaklega til stjórnsýslulegs fyrirkomulags hjá Borginni sem fær hæstu einkunn eða framúrskarandi (Excellent).

Lykilskjöl - Key Documnets