Matjurtagarðar 2021
Matjurtagarðar fyrir sumarið 2021 verða opnaðir 1. maí. Íbúar í Reykjavík geta fengið matjurtagarð til afnota. Opnað verður fyrir umsóknir 15. mars 2021.
Um 600 matjurtagarðar eru leigðir út á vegum borgarinnar, þar af eru 200 í Skammadal.
Hvar eru matjurtagarðarnir?
Matjurtagarðar innan Reykjavíkurborgar eru á eftirtöldum stöðum og með því að smella á tengil er hægt að sjá hvaða garðar eru lausir.
- Vesturbær við Þorragötu
- Fossvogur við enda Bjarmalands
- Laugardalur við enda Holtavegar
- Árbær við Rafstöðvarveg
- Grafarvogur við Logafold
- Kjalarnes við Fólkvang
Garðar í Breiðholti við Jaðarsel verða ekki á vegum borgarinnar í sumar heldur hefur félagið Seljagarður tekið við rekstri á þeim görðum og getur fólk sótt um garð í gegn um Seljagardur.is.
Reykjavíkurborg útdeilir einnig görðum í Skammadal í Mosfellsbæ og verður búið að tæta þá þegar notendur taka við þeim - skoða lausa garða í Skammadal.
Hvað kostar að leigja matjurtagarð?
Góð ráð og aðstaða í görðunum
Garðarnir verða merktir. Vatn er aðgengilegt á öllum svæðum. Garðáhöld, plöntur og útsæði fylgja ekki með görðunum.
Notendur garðanna geta fengið græn og góð ráð um matjurtaræktun hjá starfsmönnum okkar með því að senda póst á matjurtagardar@reykjavik.is eða hringdu í síma 411 11 11.
Hvernig er sótt um þjónustuna?
Upplýsingar má finna hjá umhverfis- og skipulagssviði í síma 4 11 11 11. Umsóknir sendist á netfangið matjurtagardar@reykjavik.is frá og með 15. mars 2021.
Hvenær eru garðarnir afhentir?
Garðarnir verða afhentir 1. maí, en ef veður lofar geta garðyrkjendur byrjað fyrr.
Fyrirspurnir og/eða ábendingar
Fyrirspurnir sendist á matjurtagardar@reykjavik.is eða hringdu í síma 411 11 11.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar.
Vefsíða uppfærð 9. mars 2021