Í Reykjavíkurborg eru 17 sjálfstætt starfandi leikskólar. Foreldrum sem vilja nýta sér þjónustu þeirra er bent á að hafa beint samband við leikskólana. Athygli skal vakin á því að börn sem eru skráð í sjálfstætt starfandi leikskóla falla út af biðlista í almennum leikskólum borgarinnar. Foreldrar geta sótt um flutning í almennan leikskóla borgarinnar gegnum vala.is.