Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. október 2022 var lögð fram tillaga um að breyta erindi BN060954, þ.e. við suðurgafl er bætt við flóttastiga og útveggir klæddir álklæðningu, viðbyggingu ásamt lyftuhúsi á austurhlið og endurnýjun glugga í matshluta nr. 02 í húsi nr. 6 á lóð nr. 4-6 við Ármúla samkvæmt aðaluppdr. JeES arkitektar dags. 3. maí 2022, sb. 19. september 2022.
Með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:
Húseigendum að Ármúla 2, 8 og 8A.
Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá skipulagsfulltrúa, verkefnisstjóri er Sigríður Lára Gunnarsdóttir.
Kynning hefst þann 28. nóvember 2022 og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsfulltrúa skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 3. janúar 2023.
Umhverfis- og skipulagssvið notar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem settar eru fram vegna athugasemda við skipulag, s.s. kennitölu, nafn og netfang í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna borgarbúa. Að auglýsingarferli loknu eru gögn varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga hjá Reykjavíkurborg má finna hér.
Vakin er athygli á því að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og birtast meðal annars nöfn borgarbúa í fundargerðum skipulags- og samgönguráðs á netinu.