Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 18. nóvember 2022 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi fyrir Sundin, reitir 1.3 og 1.4 vegna lóðarinnar nr. 16 við Ásveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggja við húsið til norðurs einnar hæðar anddyri með risþaki (kvisti í þaki hússins) sem er einnig látið ganga yfir útitröppur til skjóls, samkvæmt uppdr. KRark dags. 20. október 2022.
Með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:
Húseigendum að Ásvegi 15 og 17, Hjallavegi 15 og 17 og Langholtsvegi 22 ,24, 26 og 28. Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim. Nánari upplýsingar eru veittar hjá skipulagsfulltrúa, verkefnisstjóri er Olga Guðrún B Sigfúsdóttir.
Kynning hefst þann 19. desember 2022 og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsfulltrúa skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 20. janúar 2023.
Umhverfis- og skipulagssvið notar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem settar eru fram vegna athugasemda við skipulag, s.s. kennitölu, nafn og netfang í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna borgarbúa. Að auglýsingarferli loknu eru gögn varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga hjá Reykjavíkurborg má finna hér.
Vakin er athygli á því að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og birtast meðal annars nöfn borgarbúa í fundargerðum skipulags- og samgönguráðs á netinu.