Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 6. nóvember 2019 og borgarráðs Reykjavíkur þann 14. nóvember 2019 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Færslu Hringbrautar vegna afmörkunar nýrrar lóðar fyrir smáhýsi að Skógarhlíð. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitast eftir að koma fyrir smáhýsum á völdum stöðum í borginni sem búsetuúrræði fyrir skjólstæðinga sína. Í breytingunni felst að koma fyrir allt að 3 smáhýsum á nýrri lóð. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillöguna má einnig nálgast á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 7. janúar 2020 til og með 18. febrúar 2020. Einnig má sjá tillöguna á vefnum, www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 18. febrúar 2020. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.