Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.

Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 30. október 2019 og borgarráði Reykjavíkur þann 7. nóvember 2019 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 42 við Funafold. Í breytingunni felst að stækka núverandi leikskóla í Funafold og gera þar sjö deilda leikskóla, stækka lóð leikskólans, fjölga bílastæðum, færa aðkomu að leikskólanum og færa til norðurs hjólastíg fyrir ofan núverandi lóðamörk. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Tillöguna má einnig nálgast á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 21. nóvember  2019 til og með 6. janúar 2020. Einnig má sjá tillögua á vefnum,www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 6. janúar 2020. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti