Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs þann 30. nóvember 2022 og borgarráðs Reykjavíkur þann 1. desember 2022 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Háskólans Í Reykjavík vegna lóðarinnar nr. 83-89 við Nauthólsveg. Í breytingunni felst m.a. fjölgun íbúða um 10, úr 415 íbúðum í 425 íbúðir, fækkun byggingarreita fyrir svonefnd stakstæð hús á reit A og B ásamt stækkun á byggingarreit fyrir stakstæð hús á reitum C og D. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Tillöguna má einnig nálgast á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:30 – 16:00 frá 22. desember 2022 til og með 7. febrúar 2023. Einnig má sjá tillöguna á vefnum, www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 7. febrúar 2023. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.

Umhverfis- og skipulagssvið notar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem settar eru fram vegna athugasemda við skipulag, s.s. kennitölu, nafn og netfang í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna borgarbúa. Að auglýsingarferli loknu eru gögn varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga hjá Reykjavíkurborg má finna hér.

Vakin er athygli á því að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og birtast meðal annars nöfn borgarbúa í fundargerðum skipulags- og samgönguráðs á netinu.