Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 15. desember 2022 var lögð fram tillaga um að innrétta búsetuúrræði í mhl. 02 og mhl. 03 á lóð nr. 19 við Laufásveg samkvæmt aðaluppdr. TEIKNA dags. 29. nóvember 2022 breytt 1. desember 2022.
Kynning þessi nær einungis til notkunarbreytingar á umræddu húsi og er innra skipulag hússins ekki fullhannað með tilliti til brunavarna.
Með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna: Húseigendum að Laufásvegi 14, 17, 18, 18a, 19, 20, 22 og 25, Skálholtsstíg 6 og Þingholtsstræti 30 og 34.
Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá skipulagsfulltrúa, verkefnisstjóri er Hrafnhildur Sverrisdóttir.
Kynning hefst þann 29. desember 2022 og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsfulltrúa skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 30. janúar 2023.
Umhverfis- og skipulagssvið notar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem settar eru fram vegna athugasemda við skipulag, s.s. kennitölu, nafn og netfang í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna borgarbúa. Að auglýsingarferli loknu eru gögn varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga hjá Reykjavíkurborg má finna hér.
Vakin er athygli á því að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og birtast meðal annars nöfn borgarbúa í fundargerðum skipulags- og samgönguráðs á netinu.