Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.

Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 23. október 2019 og borgarráði Reykjavíkur þann 7. nóvember 2019 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis, Skarfabakka vegna lóðarinnar nr. 2 við Skarfagarða. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður að hluta á norðvestur horni reitsins. Nýtingarhlutfall jarðhæðar fer úr 0.5 í 0.56 og nýtingarhlutfall millipalla í 0.25. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Tillöguna má einnig nálgast á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 21. nóvember  2019 til og með 6. janúar 2020. Einnig má sjá tillögua á vefnum,www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 6. janúar 2020. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.