Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 23. október 2019 og borgarráðs Reykjavíkur þann 9. janúar 2020 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hálshverfis vegna lóðarinnar nr. 5 við Tunguháls. Í breytingunni felst að heimilað byggingarmagn ofanjarðar er aukið úr 0.7 í 1.1, byggingarreitur á norðvestur og suðaustur enda byggingar er stækkaður og bílastæðakröfum er breytt. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillöguna má einnig nálgast á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 20. janúar 2020 til og með 2. mars 2020. Einnig má sjá tillöguna á vefnum, www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 2. mars 2020. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.