Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.

Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 6. nóvember 2019 og borgarráði Reykjavíkur þann 14. nóvember 2019 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Naustareits vegna lóðarinnar nr. 6-10A við Vesturgötu. Í breytingunni felst að heimilt er að koma fyrir svölum á austurenda vesturgötu 6-8 og endurbyggja svalir með tröppum á Vesturgötu 10. Gististarfsemi heimiluð á 2. hæð Vesturgötu 6-8. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Tillöguna má einnig nálgast á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 21. nóvember  2019 til og með 6. janúar 2020. Einnig má sjá tillögua á vefnum,www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 6. janúar 2020. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.