Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 15. janúar 2020 og borgarráðs Reykjavíkur þann 23. janúar 2020 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Vesturlandsvegs, Halla vegna 1. áfanga Korpulínu jarðstreng. Vegna breytinga á aðflutningskerfi Landsnets á milli tengivirkjanna við Korpu og á Geithálsi þá er gert ráð fyrir tilfærslu á Korpulínu 1 og nýrri legu hennar í jarðstreng sem mun liggja meðfram Lambhagavegi í Úlfarsárdal. Lagður verður nýr 132 kv jarðstrengur í stað núverandi loftlínu sem verður fjarlægð eftir spennusetningu strengsins. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillöguna má einnig nálgast á skjá og tölvu í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 30. janúar 2020 til og með 12. mars 2020. Einnig má sjá tillöguna á vefnum, www.reykjavik.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 12. mars 2020. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.