Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa  3. nóvember 2022 var lögð fram tillaga um leyfi til að  byggja skúr, staðsteyptar undirstöður og botnplata, útveggir og þak úr timbri, í norðurhorni lóðar við húsi á lóð nr. 66 við Víðimel samkvæmt aðaluppdr. GS teiknistofu dags. 1. september 2022, br. 17. október 2022.

Með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Víðimel 68 og Hringbraut 87 og 89.

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá skipulagsfulltrúa, verkefnisstjóri er Sigríður Lára Gunnarsdóttir.

Kynning hefst þann 28. nóvember 2022 og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsfulltrúa skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 3. janúar 2023.

Umhverfis- og skipulagssvið notar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem settar eru fram vegna athugasemda við skipulag, s.s. kennitölu, nafn og netfang í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna borgarbúa. Að auglýsingarferli loknu eru gögn varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga hjá Reykjavíkurborg má finna hér.

Vakin er athygli á því að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og birtast meðal annars nöfn borgarbúa í fundargerðum skipulags- og samgönguráðs á netinu.