Skipulagssjá
Í Skipulagssjá Reykjavíkurborgar má nálgast samþykkt deiliskipulag og aðalskipulag fyrir borgina. Þjónustan er öllum opin og gjaldfrjáls.
Opna Skipulagssjá.
Hvaða upplýsingar má nálgast í Skipulagssjá?
Vefsjáin er tvískipt. Annars vegar er veittur aðgangur að staðfestu deiliskipulagi og skilmálum deiliskipulags og hins vegar að aðalskipulagi Reykjavíkur (AR2010 - 2030) þar sem finna má almennari stefnumörkun borgarstjórnar um skipulag borgarinnar í heild sinni.
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins til 2040 er að finna á vefsíðum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Einnig má nálgast nýjustu loftmyndir af borginni og valin þemu úr landupplýsingakerfi Reykjavíkur (LUKR) og í aðalskipulagsglugganum er hægt að nálgast nýjustu upplýsingar um magn og gerð húsnæðis og fjölda íbúa á völdum svæðum.
Tilgangur Skipulagssjár
Skipulagssjánni er ætlað að auka aðgengi almennings og framkvæmdaaðila að gildandi stefnumörkun borgaryfirvalda í skipulagsmálum. Skipulagsáætlanir eru sífelldum breytingum háðar og því mikilvægt að tryggja gott aðgengi að skipulagsáætlunum á stafrænu formi, þar sem nýjustu breytingar hafa verið færðar inn.
Á komandi árum mun hverfisskipulag Reykjavíkur taka við af hefðbundu deiliskipulagi og og hverfisskipulagssjá koma í stað deiliskipulagshluta skipulagssjár.