Þjónustu- og nýsköpunarsvið
Þjónustu- og nýsköpunarsvið, einnig kallað ÞON, er eitt af þremur kjarnasviðum Reykjavíkurborgar. Meginhlutverk sviðsins er að annast innri og ytri þjónustu Reykjavíkurborgar og stuðla að nýsköpun í starfsemi hennar. ÞON starfar þvert á fagsvið borgarinnar og ber til að mynda ábyrgð á upplýsingatækni, gagnastjórnun, nýsköpun, tæknilegum umbótum og þjónustu. Þá leiðir sviðið innleiðingu á gildandi þjónustustefnu Reykjavíkurborgar og ber ábyrgð á rekstri stjórnsýslubygginga. Sviðið gegnir lykilhlutverki í samhæfingu tækni-, gagna-, þjónustu- og rekstrarmála Reykjavíkurborgar og er borgaryfirvöldum til faglegrar ráðgjafar í þeim málaflokkum sem undir sviðið heyra.
Sviðsstjóri er Óskar J. Sandholt. oskar.j.sandholt@reykjavik.is
Starfseiningar þjónustu- og nýsköpunarsviðs
Þjónustu- og nýsköpunarsvið skiptist í fimm skrifstofur sem, ásamt skrifstofu sviðsstjóra, sinna allar ólíkum þjónustuhlutverkum en mynda samt sem áður eina sterka heild. Sviðið sér einnig um rekstur Borgarskjalasafns Reykjavíkur sem starfar samkvæmt samþykktum Reykjavíkurborgar og lögum og reglum. Þá sinnir sviðið nýsköpunarverkefnum í þágu borgarbúa, rannsóknarþjónustu borgarinnar og stafrænni persónuvernd.
Skrifstofa sviðsstjóra
Ber ábyrgð á rekstri, framkvæmd og stefnumótun sviðsins ásamt gæðamálum og eftirfylgni með ákvörðunum sem snúa að málaflokki þjónustu og nýsköpunar.
Skrifstofustjóri: Karen María Jónsdóttir Karen.Maria.Jonsdottir@reykjavik.is
Stafræn Reykjavík
Ber ábyrgð á rafvæðingu þjónustuferla innan borgarinnar, vefmálum og stafrænni umbreytingu. Innan Stafrænnar Reykjavíkur eru starfrækt þrjú teymi – verkefnastofa, vefteymi og þróunarteymi – sem vinna þétt með öðrum einingum sviðsins að alls konar verkefnum.
Skrifstofustjóri: Þröstur Sigurðsson Throstur.Sigurdsson@reykjavik.is
Skrifstofa þjónustuhönnunar
Ber ábyrgð á samræmdri framlínuþjónustu Reykjavíkurborgar, rekstri þjónustuvers og ábendingavefs. Þá ber skrifstofan ábyrgð á innleiðingu þjónustustefnu. Innleiðing er unnin með fjölbreyttum verkefnum innan verkefnastofu þjónustuhönnunar og með Gróðurhúsinu, vinnustofu í þjónustuhönnun fyrir starfsfólk borgarinnar.
Skrifstofustjóri: Arna Ýr Sævarsdóttir Arna.Yr.Saevarsdottir@reykjavik.is
Gagnaþjónustan
Ber ábyrgð á gagnastjórnun og hagnýtingu gagna í starfsemi borgarinnar.
Skrifstofustjóri: Oli.Pall.Geirsson@reykjavik.is
Upplýsinga og skjalastýring
Upplýsinga- og skjalastýring hefur umsjón með skjalamálum miðlægrar stjórnsýslu og skrifstofum sviða sem hafa aðsetur í Borgartúni 12-14 og í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Skrifstofustjóri: Óskar Þór Þráinsson oskarthr@reykjavik.is
Upplýsingatækniþjónusta
Ber ábyrgð á rekstri upplýsingatækniinnviða og hugbúnaðarþróunar á virðisaukandi vörum fyrir svið Reykjavíkurborgar ásamt samskipti og samningum við birgja. Skrifstofan skiptist í þrjár deildir: tækniþjónustu, tæknirekstur og kerfislausnir ásamt stoðþjónustu.
Skrifstofustjóri: Friðþjófur Bergmann Fridthjofur.Bergmann@reykjavik.is
Borgarskjalasafn
Fer með yfirstjórn skjalamála hjá Reykjavíkurborg og hefur eftirlit með skjalavörslu og skjalastjórn eftirlitsskyldra aðila.
Borgarskjalavörður: Svanhildur Bogadóttir svanhildur.bogadottir@reykjavik.is
Stefnuljós þjónustu- og nýsköpunarsviðs
Öflug þjónustuupplifun
Unnið er að þróun þjónustu borgarinnar á grunni fyrirliggjandi þjónustustefnu. Þjónusta Reykjavíkurborgar er hönnuð og skipulögð út frá þörfum og sjónarhorni notenda hennar.
Markviss upplýsingagjöf
Upplýsingagjöf um þjónustu borgarinnar er aðgengileg og miðlað á fjölbreyttan hátt. Ímynd borgarinnar eflist með markvissri upplýsingamiðlun ásamt aukinni notkun og miðlun gagna.
Sterk framlínuþjónusta
Framlínuþjónusta borgarinnar er samræmd og öll áhersla er lögð á að málaleitan notenda sé leyst í fyrstu snertingu í krafti einfaldra og öruggra ferla.
Stafræn vegferð
Nútímaleg kerfi
Upplýsingakerfi eru þróuð áfram á grunni örra tækninýjunga og stafrænna umbreytinga. Unnið er að því að einfalda skipulag kerfa, ferla og auka samvirkni.
Snjöll nýsköpun
Leitað er eftir nýjum leiðum til að leysa áskoranir í starfsemi borgarinnar. Í samstarfi við frumkvöðla undirbyggjum við snjallborgina Reykjavík og nýtum gögn til þróunar og nýsköpunar.
Sjálfvirk stjórnsýsla
Sjálfvirk stjórnsýsla einfaldar umsóknarferla og aðgengi að þjónustu borgarinnar. Aukin sjálfvirkni mun stuðla að minni sóun í kerfinu, hagræðingu og einföldun.
Kúltúrhakk
Skilvirkt teymisstarf
Vinnulag og umhverfi okkar er skipulagt á þann hátt að stuðla megi að öflugu teymisstarfi og nýsköpun. Markvisst er unnið þvert á einingar í öllum verkefnum til að hámarka virði fyrir notendur þjónustu.
Frjótt vinnuumhverfi
Við miðlum þekkingu, leiðbeinum og erum í farabroddi sem frumkvöðlar og áhrifavaldar. Starfsfólk borgarinnar fær þannig stuðning við að aðlagast nýrri menningu, nýjum aðferðum og nýjum hugsunarhætti.
Stöðug endurgjöf
Vinnubrögð okkar eru í stöðugri endurskoðun og við berum kennsl á tækifæri til þess að gera betur. Endurgjöf og stöðugar umbætur einkenna öll okkar störf.
Hafðu samband
Erindi og fyrirspurnir má senda í tölvupósti á thon@reykjavik.is.
Ábendingar er varða þjónustu má senda í gegnum ábendingavef Reykjavíkurborgar
Þjónustuver Reykjavíkurborgar er staðsett í Borgartúni 12-14. Opnunartími er frá 8:20-16:15 alla virka daga. Sími þjónustuvers er 411-1111.