Um Námsflokka Reykjavíkur
Námsflokkar Reykjavíkur voru stofnaðir árið 1939 og eru elsta fullorðinsfræðslustofnun landsins. Hlutverk þeirra er að sinna fullorðinsfræðslu og framfylgja félagslegri menntastefnu borgarinnar.
Námsflokkarnir sinna einkum þeim sem minnsta formlega menntun hafa. Það er gert á margvíslegan hátt, m.a. með náms- og starfsráðgjöf, sérkennslu í lestri og skrift, grunnskólanámi fyrir fólk eldra en 16 ára, undirbúningsnámi fyrir framhaldsskóla og ýmsum lengri og styttri fræðsluverkefnum sem flest eru unnin í samstarfi við aðra.
Stefna Námsflokkanna er að vera í sem mestu samstarfi við aðrar stofnanir Reykjavíkurborgar, aðrar menntastofnanir og við nágrannasveitarfélögin.
Námsflokkarnir vilja hvetja fólk til að auka við menntun sína og hjálpa því að finna námsleiðir við hæfi. Starfsfólk Námsflokkana veitir fúslega upplýsingar um þær námsleiðir sem standa fullorðnum Reykvíkingum til boða.
Staðsetning
Skrifstofa og kennsluhúsnæði Námsflokka Reykjavíkur eru að Suðurlandsbraut 32,
á 2. hæð. Inngangur snýr á móti Orkuhúsinu.
Skrifstofan er opin á mánud. - fimmtud. kl. 8:15-14:15. Sími: 411 6540.
Náms- og starfsráðgjöf fer fram í Námsflokkum Reykjavíkur.