Hvernig tekur fólk þátt?

Senda skal inn til Reykjavíkurborgar áður óútgefið handrit að ljóðabók, frumsamið á íslensku. Handritum sem keppa til verðlaunanna þarf að skila í þremur eintökum, merktum dulnefni, en nafn og símanúmer fylgi með í lokuðu umslagi. Handrit berist í síðasta lagi miðvikudaginn 1. júní 2022.

Utanáskrift sendinga:

Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

b.t. Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO

Ráðhúsi Reykjavíkur

Tjarnargötu 11

101 Reykjavík

Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður að starfa með. Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka, má fella verðlaunaafhendinguna niður það ár.

Hver eru verðlaunin?

Verðlaunahafi hlýtur verðlaunafé. Það er greitt af Reykjavíkurborg og eru ein verðlaun veitt árlega í vetrarbyrjun. Árið 2021 verður upphæð verðlaunanna 1.000.000 krónur.

Hver skipar dómnefnd?

Dómnefnd verðlaunanna er skipuð af menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar til eins árs í senn. Hana skipa þrír einstaklingar, einn samkvæmt tilnefningu menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs, einn samkvæmt tilnefningu Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO og einn samkvæmt tilnefningu Rithöfundasambands Íslands.

Eldri handrit

Jón Hjartarson hlaut verðlaunin árið 2021 fyrir handrit að ljóðabókinni Troðningar. Aðrir sem áttu handrit í keppninni geta vitjað þeirra á skrifstofu menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar fyrir febrúarlok 2021, eftir það verður þeim eytt. Gefa þarf upp dulnefni. Aðeins var opnað umslag með nafni verðlaunahafa.

Verðlaunahafar frá upphafi:

 2021: Jón Hjartarson: Troðningar                                                                                                                                                                                        
 2020: Ragnheiður Lárusdóttir - 1900 og eitthvað

 2019: Harpa Rún Kristjánsdóttir - Edda
 2018: Haukur Ingvarssonar - Vistarverur
 2017: Jónas Reynir Gunnarsson - Stór olíuskip
 2016: Eyrún Ósk Jónsdóttir - Góðfúslegt leyfi til sígarettukaupa
 2015: Ragnar Helgi Ólafsson - Til hughreystingar þeim sem finna sig ekki í samtíma sínum
 2014: Hjörtur Marteinsson - Alzheimer-tilbrigðin 
 2013: Bjarki Karlsson – Árleysi alda
 2012: Dagur Hjartarson – Þar sem vindarnir hvílast - og fleiri einlæg ljóð
 2011: Sindri Freysson – Í klóm dalalæðunnar
 2010: Þórdís Gísladóttir – Leyndarmál annarra
 2009: Eyþór Árnason – Hundgá úr annarri sveit
 2008: Magnús Sigurðsson – Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu
 2007: Ari Jóhannesson – Öskudagar
 2006: Ingunn Snædal – Guðlausir menn - Hugleiðingar um jökulvatn og ást
 2004: Auður Ólafsdóttir – Rigning í nóvember
 2002: Sigurbjörg Þrastardóttir – Sólar Saga
 2000: Hjörtur Björgvin Marteinsson – AM 00
 1998: Bjarni Bjarnason – Borgin bak við orðin
 1997: Elín Ebba Gunnarsdóttir – Sumar sögur
 1994: Helgi Ingólfsson – Letrað í vindinn.