Deild opinna svæða
Verkefni og hlutverk
Deild opinna svæða heyrir undir skrifstofu framkvæmda og viðhalds. Deildin sér um áætlanagerð, hönnun, útboð, framkvæmd og eftirlit með stofnframkvæmdum og viðhaldi allra opinna svæða innan borgarmarkanna. Til opinna svæða teljast stofnanalóðir, skrúðgarðar, Grasagarðurinn í Laugardal, trjágróður og blómabeð, leik- og útivistarsvæði ásamt 2.500 hektara landi í útmörkum borgarinnar.
Deild opinna svæða sér einnig um framkvæmd og útfærslu verkefna sem borgarbúar kjósa um á samráðsvefnum Hverfið mitt og falla undir starfssvið deildarinnar.
Minniháttar viðhald svo sem hreinsun og daglegur rekstur er á vegum hverfisstöðva og umhirða gróðurs og garða er unnin frá verkbækistöðum garðyrkju og falla því ekki undir starfsemi deildarinnar.
Útboð á vegum skrifstofu framkvæmda og viðhalds eru auglýst á vef innkaupadeildar.
Markmið og leiðir
Deild opinna svæða leggur áherslu á að stunda gott verklag við undirbúning og áætlanagerð vegna framkvæmda á vegum borgarinnar og að stuðla að því að ávalt sé gætt hagkvæmni, jafnræðis og faglegra vinnubragða.
- Endurnýjun og uppbygging leiksvæða í borginni er unnin samkvæmt faglegri aðgerðaráætlun í samræmi við samþykkta leiksvæðastefnu borgarinnar.
- Endurnýjun og uppbygging grassvæða, blómabeða og trjágróðurs á opnum leiksvæðum og stofnanalóðum í borginni er unnin samkvæmt gæðalýsingum og leiðbeinandi viðmiðum Reykjavíkurborgar.
- Viðhald, endurgerð, nýbygging trjábeða, skrúðgarða og skógarlunda er unnin í samræmi við stefnu Reykjavíkurborgar í trjárækt.
Upplýsingar um framkvæmdir á vegum borgarinnar er hægt að skoða í Framkvæmdir í Reykjavík.
Ábendingar og/eða fyrirspurnir
Við viljum gjarnan fá ábendingar um það sem betur má fara. Þú getur sett inn ábendingu og upplýsingar í ábendingakerfið okkar >>> SETJA INN ÁBENDINGU <<< eða hringt í þjónustuver Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12 - 14, í síma 4 11 11 11, fax 411 1169. Starfsmenn þar færa þá ábendingu inn í kerfið. Opið kl. 8:20 - 16:15 alla virka daga. Fyrirspurnir varðandi einstakar framkvæmdir skal senda með tölvupósti á netfangið usk@reykjavik.is.