Félagsstarf fullorðinna
Starfræktar eru 17 félagsmiðstöðvar víðsvegar um borgina sem eru opnar Reykvíkingum á öllum aldri. Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf auk fjölda námskeiða. Félagsstarfið er vettvangur samfunda, mannlegra samskipta og skapandi athafna. Hádegisverður er í boði á öllum þessum stöðvum og kaffiveitingar. Framboð getur verið breytilegt milli stöðva og fólk getur farið á milli eftir áhuga og dagskrá hverju sinni.
Hver stöð býður upp á sína eigin dagskrá sem samanstendur af ýmsum spennandi hlutum. Sem dæmi má nefna: vinnustofur, hagleikssmiðjur, listasmiðjur og klúbbastarf ýmis konar, spilamennsku, skoðunarferðir, dans og leikfimi. Síðan eru ýmsir árlegir viðburðir og/eða tilfallandi, svo sem grillveisla, haustfagnaður og þorrablót. Lögð er áhersla á sjálfsprottið félagsstarf og hver og einn getur haft áhrif á þróun þess.
Um er að ræða þjónustu sem er opin öllum Reykvíkingum án sérstakra skilyrða.
Auk þessa er félagsstarf fyrir fatlaða rekið í Hinu húsinu. Annars vegar er það fyrir fólk á aldrinum 16 - 25 og hins vegar fyrir 16 - 40 ára. Starfið er á miðvikudags- og föstudagskvöldum. Félagsstarfið er skipulagt af þátttakendum í samstarfi við starfsfólk.
Afgreiðslutími félagsmiðstöðvanna er alla virka daga frá kl. 8:30 - 16:30. Athugið að hjá sumum er hann kl. 8:00 - 16:00 á sumrin.
Ferill umsóknar/þjónustu
Ekki þarf að sækja sérstaklega um þátttöku í félagsstarfi, aðeins að mæta á staðinn. Öll velkomin.
Deildarstjórar í félagsstarfi eða forstöðumenn á eftirfarandi stöðum eru tengiliðir vegna félagsstarfs.
Að öllu jöfnu er opið alla virka daga frá kl. 8:00/8:30 til 16:00/16:30.
Auk ofantaldra eru á Korpúlfsstöðum í Grafarvogi starfsemi Korpúlfa, sem eru með starfsemi í Borgum, Spönginni 43. Sími Korpúlfa er 517 3040.
Hvað kostar þjónustan?
Kostnaður er breytilegur en þó alltaf eins lítill og kostur er. Ekkert kostar að koma í heimsókn og kynna sér starfsemi félagsmiðstöðvanna en starfið getur verið mjög breytilegt milli stöðva.
Fyrirspurnir og/eða ábendingar
Hægt er að koma fyrirspurnum og almennum kvörtunum/ábendingum á framfæri símleiðis eða í móttöku á öllum þjónustumiðstöðvum.