Íbúðarhúsalóðir
Veldu þér stað til búsetu í Reykjavík
Reykjavíkurborg býður lóðir til sölu á föstu verði í samræmi við samþykkt borgarráðs 8. maí 2014. Boðnar eru lóðir í Úlfarsárdal, Reynisvatnsási, í Blesugróf og Lambaseli.
Veldu möguleika:
- Hraunbær 103A - íbúðablokk fyrir 60+
- Úlfarsárdalur
- Reynisvatnsás
-
Íbúða- og atvinnusvæði - Vesturbugt - Uppbyggingarsvæði við Gömlu-Höfnina
Samkvæmt samþykkt borgarráðs 8. maí 2014 er verð fyrir byggingarrétt með gatnagerðargjöldum í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási á íbúð í fjölbýlishúsi 4,6 milljónir króna, í rað- og parhúsum kostar byggingarrétturinn 7,6 milljónir og 11,1 milljón króna á einbýlishús upp að 375 fermetrum. Allar lóðirnar sem bjóðast eru byggingarhæfar.
Ferill umsókna
Í stórum dráttum er umsóknarferlið eftirfarandi:
- Sótt er um byggingarrétt eða lóð á sérstöku umsóknareyðublaði.
- Úthlutað er í þeirri röð sem umsóknir berast.
- Umsókn er móttekin og umsækjandi fær staðfestingu með ósk um að senda gögn um greiðsluhæfi eða lánsloforð
- Eftir að umsækjandi hefur skilað inn gögnum er umsókn lögð fyrir borgarráð, sem úthlutar byggingarrétti ásamt leigulóðarréttindum. Þá er kominn á bindandi kaupsamningur.
- Lóð skal greidd innan 45 daga frá úthlutunardagsetningu (samþykkt borgarráðs).
- Gengið er frá lóðarleigusamningi eftir að lóð/byggingaréttur hefur verið greiddur.
Nánari upplýsingar er að finna í almennum reglum um úthlutun lóða og sölu byggingaréttar fyrir íbúðarhús í Reykjavík, maí 2014 (sjá undir tengd skjöl til hægri á síðu).