Reykjavík í þrívídd
Landupplýsingar eru að færast yfir í þrívíddarummhverfi og opnar það marga nýja möguleika. Á undanförnum árum hefur verið unnið talsvert við uppbyggingu þrívíddarlíkans af Reykjavík og nú er hægt að skoða miðborgina í þrívídd. Húsin eru teiknuð í Sketchup, langflest af Páli Heimi Pálssyni, og má nálgast þau í 3D Warehouse.
Hjá Landupplýsingum eru einnig til húskubbar með hæðarupplýsingum, líkt og sjá má þegar Reykjavík er skoðuð í Google Earth, en þau gögn eru frá árinu 2009 og gefa aðeins grófa mynd af útliti húsa.
Reykjavík í þrívídd. Myndband sem sýnir byggingar í Kvos og á fleiri stöðum í Reykjavík.
Kvosin í þrívídd Opnar CityEngine vefskoðara, ca. 40 Mb. Virkar best í nýlegri tölvu með góðu skjákorti.
Verkefnið Reykjavík í þrívídd (myndband á Youtube)
Reykjavík í 3D Warehouse
Google Earth