Tilboðsfrestur á lóðum í Úlfarsárdal rann út 29. ágúst 2019: Yfirlit yfir tilboð sem bárust. Samantekt frá skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.
Útboð á lóðum í Úlfarsárdal.
Tilboðsfrestur á lóðum í Úlfarsárdal rennur út 29. ágúst 2019. Um er að ræða 33 lóðir og 103 íbúðir í hverfinu.
Smelltu á merktar lóðir á kortinu hér fyrir ofan til að sjá skilmála og sækja tilboðsblað.
Tilboð verða opnuð í heyranda hljóði í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur sama dag, sjá tímasetningar neðst á síðu. Hæstbjóðandi eða umbjóðandi hans skulu vera á staðnum og staðfesta tilboð sín og ganga frá tilboðstryggingu að upphæð 100.000 kr.
Smelltu á merktar lóðir á kortinu hér fyrir ofan til að sjá skilmála og sækja tilboðsblað.
Um útboðið gilda Úthlutunar- og útboðsskilmálar.
Skila þarf undirrituðum tilboðum á eyðublöðum sem eru hér á þessari síðu. Tilboð skulu vera í lokuðu umslagi merkt viðkomandi lóð. Eingöngu skal vera eitt tilboð í hverju umslagi. Tekið er við tilboðum í móttöku ráðhúss Reykjavíkur að Tjarnargötu 11, 101 Reykjavík. Lokafrestur til að skila tilboði er kl. 12.00 fimmtudaginn 29. ágúst 2019.
Tilboð verða opnuð í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur sama dag og tilboðsfrestur rennur úr. Hæstbjóðandi eða umbjóðandi hans skulu vera á staðnum og staðfesta tilboð sín og ganga frá tilboðstryggingu að upphæð 100.000 kr. Sjá tímasetningar opnunar neðst á síðunni.
Eingöngu einstaklingar geta boðið í einbýlishúsalóðir, en lögaðilum er auk einstaklinga heimilt að bjóða í raðhús á einum reit. Einungis lögaðilum er heimilt að bjóða í byggingarrétt fjölbýlishúsa. Sjá nánar ákvæði um tilboðsgjafa og tilboð í kafla 3.1 í útboðs- og úthlutunarskilmálum.
Í boði er byggingarréttur á eftirtöldum lóðum:
Einbýlishús
- Gerðarbrunnur 7
- Gerðarbrunnur 46
- Gerðarbrunnur 48
- Gerðarbrunnur 52-54
- Friggjarbrunnur 21 (ath. breyting - þessi lóð er ekki í útboði)
- Sifjarbrunnur 7
- Sifjarbrunnur 30
- Sifjarbrunnur 32
- Urðarbrunnur 3
- Urðarbrunnur 5
- Urðarbrunnur 13
- Urðarbrunnur 19
- Urðarbrunnur 20
- Urðarbrunnur 21
- Urðarbrunnur 36-38
- Urðarbrunnur 46
- Urðarbrunnur 80
- Urðarbrunnur 94
- Urðarbrunnur 98
- Úlfarsbraut 14
Einungis einstaklingar geta boðið í byggingarrétt einbýlishúss. Tilboðsblað fyrir einbýlishús
Tvíbýlishús
- Gefjunarbrunnur 11
- Gefjunarbrunnur 15
Einungis einstaklingar geta boðið í byggingarrétt tvíbýlishúss. Tilboðsblað fyrir tvíbýlishús
Raðhús (einstaklingar og lögaðilar)
- Rökkvatjörn 5-11
- Rökkvatjörn 10-16
- Jarpstjörn 6-14
- Jarpstjörn 19-27
Bæði einstaklingar og lögaðilar geta boðið í byggingarrétt framantalinna raðhúsa. Tilboðsblað einstaklinga og lögaðila fyrir raðhús
Raðhús (eingöngu einstaklingar)
- Silfratjörn 11-15
- Silfratjörn 14-18
- Jarpstjörn 5-9
- Jarpstjörn 16-20
Eingöngu einstaklingar geta boðið í byggingarrétt framantalinna raðhúsa. Tilboðsblað einstaklinga fyrir raðhús
Parhús (Eingöngu einstaklingar)
- Friggjarbrunnur 31-33
- Urðarbrunnur 10-12 (Ath. Misræmi er á deiliskipulagsuppdrætti og lóðarblaði varðandi Urðarbrunn 10-12. Lóðinni verður úthlutað á grundvelli lóðarblaðs á borgarvefsjá og úthlutunar – og útboðsskilmálum, uppfærðir ágúst 2019).
Eingöngu einstaklingar geta boðið í byggingarrétt framantalinna parhúsa. Tilboðsblað einstaklinga fyrir parhús
Fjölbýlishús
- Reitur E
Eingöngu lögaðilar geta boðið í byggingarrétt fjölbýlishúsa. Tilboðsblað fyrir fjölbýlishús
Tilboðin eru í samræmi við „Úthlutunar- og útboðsskilmála fyrir sölu byggingarréttar í Úlfarsárdal“ sem samþykktir voru á fundi borgarráðs þann 1. mars 2018, uppfærðir í ágúst 2018 og júlí 2019.
Mæliblöð fyrir hverja lóð verða aðgengileg í Borgarvefsjá. www.borgarvefsja.is
Opnun tilboða
Tilboð verða opnuð í heyranda hljóði í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur fimmtudaginn 29. ágúst.
- Tilboð í fjölbýlishús verða opnuð frá kl. 14.00
- Tilboð í raðhús verða opnuð frá kl. 14.15
- Tilboð í tvíbýlishús verða opnuð frá kl. 14.30
- Tilboð í parhús verða opnuð klukkan frá kl. 14.45
- Tilboð í einbýlishús verða opnuð frá kl. 15.00
Hæstbjóðandi, eða umbjóðandi hans, verður að vera á staðnum og staðfesta tilboð sitt og ganga frá tilboðstryggingu að upphæð 100.000 kr.
Tilboð í lóðirnar verða opnaðar í stafrófsröð og númeraröð
Nánari upplýsingar
- Úthlutunar- og útboðsskilmálar
- Yfirlitsteikning af lausum lóðum sem pdf mynd
- Deiliskipulag fyrir Úlfarsárdal - Greinargerð
- Deiliskipulagsuppdráttur fyrir Úlfarsárdal
Fyrirspurnir sendist á netfangið lodir@reykjavik.is